ég sit í vinnunni og held að ég sé að fá eyrnabólgu. það er þó ekki vegna þess hve ég hef talað mikið í símann undanfarið, heldur út af einhverju öðru. hringir síminn rétt í þessu.. þjónustuver góðan dag.. ertu örugglega að horfa gegnum scartrásina? já.. þetta hljómar eins og vandamál með loftnetið þitt. ertu með örbylgjuloftnet?
af þessu samanstendur minn orðaforði þessa dagana. allir að hringja inn og panta sýn og fá aðstoð með stillingar og tengingar.
en svona fyrir utan vinnuna þá er ég bara hress og kát. ég vil endilega koma því fram við aðdáendurna að ég hef haft voða lítinn tíma til að skrifa hér í vefdagbókina og svo kem ég heim og nenni bara engan veginn í tölvuna, eftir að hafa setið fyrir framan slíka allan daginn. þá vitiði það.
annars er bara almenn stemning hér í vinnunni út af há emm.. persónulega hef ég fengið mun meiri áhuga á fótbolta eftir að hafa setið hér í 3 mánuði og talað um keppnina og selt fótboltaþyrstum viðskiptavinum áskrift að sýn. svo er líka leikur í gangi þar sem við völdum okkur menn í lið og fáum svo stig ef þeir skora í keppninni sjálfri eða ef liðið vinnur og svo framvegis. mjög skemmtilegt allt saman og er ég komin með 11 stig sem er algjört prump því sá efsti er með 55 stig. ég vil þó taka fram að ég valdi alveg sjálf í liðið og er mjög stolt af því að vera þó komin með 11 stig, því ég veit nánast engin deili á fótboltamönnum né hversu góðir þeir eru. ronaldinho og rooney eru þó að sjálfsgöðu þarna og treysti ég því á það að rooney spili með þegar nær dregur..
heyrðu halló halló hvað er að gerast.. rétt í þessu kom vaktstjóri til mín og spurði mig hvort ég vildi ekki bara fara heim. afþakkaði ég það? nei.