dröfn vinkona mín á afmæli í dag. vei vei vei... verst að hún er í ammríku svo ég get ekki gefið henni ammlisknús. svo það verður bara að duga að gefa henni knús að hætti þeirra sem fæddir eru á þessari öld, en það er knús í rafrænu formi *knúsiknúsiknúsiknús dröfn mín*
núna er ég smá sorgmædd. maja vinkona mín var að fara til ameríku í gær þar sem hún verður í ár. mér finnst það mjög leiðinlegt. núna er enginn sem nennir að fara með mér á súfistann og sitja í fjóra klukkutíma og lesa bækur um myndlist og ljóð, en það gerðum við alla vega einu sinni í viku. ég á eftir að sakna hennar mikið mikið. fyrir ykkur sem þekkið hana ekki þá er þetta ein besta stelpa sem ég þekki og mjög góð vinkona mín. en hún kemur aftur svo ekki er alveg fokið í... en eitt ár er langur tími og ég á eftir að sakna hennar.
eitt sem ég skil ekki alveg. stundum fer ég á inná síður sem ég hef aldrei farið inná áður og þá kemur oft upp svona gluggi sem stendur í "wow, you are visitor number 50 000 000!!" og allt blikkar og voða flott. svo stendur að ég hafi unnið eitthvað og eigi að "press here to claim your prize" hvernig get ég verið gestur númer fimmtíumilljón tuttugu sinnum?? það er nú bara lógískt að ég sé næst númer fimmtíumilljónogeitt. skrýtið..
mig langar að semja jólaljóð fyrir bloggsíðuna mína...
ef jólin kæmu aldrei
yrði ég sorgmædd
enginn myndi setja upp jólaljós
og engin jólatré
en svo er það stærsti vandinn..
hvert ætti ég að senda öll jólakortin..?
þetta var semi-nútímalegt jólaljóð..